Súpur

Rauð linsubaunasúpa (tekið af bloggi Heilsumömmunnar)
Hráefni:
2 dl rauðar linsubaunir
1 1/2 – 2 l vatn
1-2 tsk kókosolía eða önnur góð olía
1 laukur
2 lárviðarlauf
3 hvítlauksgeirar
3 gulrætur
2 sellerý stilkar
1 dós/flaska maukaðir tómatar
1 msk grænmetiskraftur
2 tsk ítalskt pastakrydd eða pizzakrydd (t.d. frá pottagöldrum)
2 tsk oregano
2 tsk paprika
salt og pipar
lúka af ferskri steinselju

Aðferð:
Leggjið linsubaunir í bleyti um morgunin og skolið svo vel áður en þeim er blandað saman við súpuna. Þær verða auðmeltari við þetta.
Hitið pönnu, bræðið kókosolíuna og steikið laukinn við lágan hita.
Bætið við smátt brytjuðum gulrótum, sellerý og hvítlauk.
Bætið vatninu við ásamt linsunum, tómötum og öllu kryddi.
Sjóðið í ca 25 mín og þegar þið takið pottinn af hellunni setjið þið steinseljuna út í og smakkið til hvort það þurfi meira krydd.

Ég bætti heinz chillisósu, chillipipar og rauðri papriku í súpuna. Mætti sleppa chilli sósunni næst, það kemur leiðinlegt aukabragð í súpuna.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli